Alvarpið

Fillifjónkan 33. þáttur – Næturlestir

03.21.2019 - By AlvarpiðPlay

Download our free app to listen on your phone

Download on the App StoreGet it on Google Play

Fillifjónkan hringir á milli Reykjavíkur og Svíþjóðar, en fer á trúnóferðalag um allan heiminn.

Minjavörðurinn Lára talar frá Stokkhólmi og segir tragíska sögu af máv sem stal gúrkusamlokunni hennar og skeit á gólfið.

Rithöfundurinn Júlía lætur reyna á spurninguna hve oft er hægt að minnast á leiksigur sinn sem afmælisgestur í kvikmyndinni Stikkfrí, í einum þætti.

Helga Bjöss ber á góma, söngkonan Robyn er rædd og sparnaðarhorn Láru er opnað í fyrsta sinn.

Niðurstaða þáttarins: Júlía er lifandi jafningjafræðsluforvörn um skaðsemi áralangrar dagdrykkju.

Fillifjónkan er komin með nýjan hljóðbúnað og hefur aldrei hljómað jafn vel!

More episodes from Alvarpið