Föstudagsgesturinn að þessu sinni var Sveinn Einarsson leikstjóri en hann hefur nýlega sent frá sér bókina Á sviðsbrúninni, hugleiðingar um leikhúspólitík, þar sem hann rifjar upp starf sitt í leikhúsum,óperuhúsum og sjónvarpi undanfarna áratugi. Hann veltir fyrir sér aðferðafræði og vinnubrögðum leikstjórans og samvinnunni við leikskáld,tónskáld,leikarara,söngvara o.fl. Sveinn rifjaði upp æskuna, uppvöxtinn, skólagönguna, námsárin í Svíþjóð og París, ferlinum í leikhúsum, hér á RÚV og svo sagði hann okkur frá nýju bókinni.
Í matarspjallinu í dag fengum við Svein Einarsson, föstudagsgest þáttarins, til að segja okkur frá sínum uppáhaldsmat, matnum og veitingahúsunum á námsárunum í París, síldabollum í Svíþjóð, fiskisúpu frá Marseille og hvað hann eldar helst sjálfur.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON