Á tónsviðinu

02.04.2020


Listen Later

Þátturinn verður helgaður tónlist sem hefur verið samin út frá sögunni um Öskubusku, en óperan „Öskubuska“ eftir Rossini verður flutt um páskana í hljóðritun frá Metrópólitan-óperunni í New York. Jules Massenet samdi líka óperu upp úr ævintýrinu árið 1899 og Sergei Prokofíev samdi frægan ballett um Öskubusku á árunum 1940 til 1944. Í ballettinum „Þyrnirós“ eftir Tsjaíkovskí birtist Öskubuska sem aukapersóna og árið 1993 samdi breski tónsmiðurinn Philip Feeney einnig ballett um Öskubusku. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV