Á tónsviðinu

03.05.2018


Listen Later

Sópransöngkonan Anna Milder-Hauptmann var ein dáðasta söngkona 19. aldar. Hún söng fyrst allra titilhlutverkið í óperunni „Fidelio“ eftir Ludwig van Beethoven og frumflutti líka lagið „Die Forelle“ (Silungurinn) eftir Franz Schubert. Í þættinum verða fluttar tónsmíðar sem tengjast Önnu. Beethoven dáði hana mjög og lýsti hrifningu sinni í bréfi árið 1816 þar sem hann kallaði hana „sína mikilsvirtu og einstöku Milder“. Schubert tileinkaði Önnu „Annan söng Suleiku“ og samdi einnig fyrir hana tónverkið „Der Hirt auf dem Felsen“ (Hirðirinn á hamrinum). Lesarar í þættinum eru Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV