Á tónsviðinu

04.10.2018


Listen Later

Ólafur Jóhann Sigurðsson fæddist 26. september 1918 og lést í júlí 1988. Í tilefni af því að 100 ár eru frá fæðingu hans verður flutt tónlist við verk hans í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 4. október. Ólafur Jóhann var einn merkasti rithöfundur Íslands á 20. öld og margir tónsmiðir hafa samið tónlist við verk eftir hann. Meðal verka sem verða flutt í þættinum er „Draumkvæði um brú“ eftir Sigursvein D. Kristinsson, kafli úr verkinu „Litlar ferjur“ eftir Atla Heimi Sveinsson og tónlist við sjónvarpsmyndina „Litbrigði jarðarinnar“ eftir Ríkarð Örn Pálsson, en myndin var gerð 1991 og byggð á samnefndri sögu Ólafs Jóhanns. Þá verða flutt sönglög og stutt kórverk eftir fleiri höfunda, svo sem Árna Björnsson og Örlyg Benediktsson. Lesari í þættinum er Leifur Hauksson, en einnig verða fluttar hljóðritanir með lestri Ólafs sjálfs.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV