Sign up to save your podcasts
Or

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:
Stórkostlega MEGADETH! Hliðstæðulausi-Dave Mustaine! Mega Davíð prestur Ellefson! Þið ofboðslegu og breysku risar! Þetta gátuð þið! Við föllum að fótum ykkar! Fótsporin er greinanleg úr geimnum og þau eru sannarlega stór! Goðsögn tryggð. Nú fara magnararnir ykkar að þagna, axirnar inn í geymslu og sneer-ið hans Mustaine mun brátt aðeins bergmála úr fortíðinni því MEGADETH ætlar brátt að hætta.
MEGADETH kaflinn hefst 60 mínútur og 28 sekæundur inn í þáttinn.
Um neyðarþátt Stokkið í eldinn er að ræða sem þýðir að Hörður og Birkir láu ekki yfir gögnum og heimildum, staðreyndir láu í léttu rúmi og náðu svo sannarlega ekki á blað og uppleggið fyrst og fremst tónlistin á samnefdri plötu sveitarinnar sem kom út fyrir skemmstu. Þó skal þess getið að kumpánarnir höfðu ekki kynnt sér málavexti í málinu sem snýr af kynferðisbroti því sem Davi Ellefsson, fyrrverandi bassaleikari MEGADETH, framdi en þó þurfti að koma inn á það samhengissins vegna því að Ellefson er sennilega mikilvægasti og hlutskarpasti meðreiðarsveinn Mustaine fyrr og síðar.
Til dæmis er ekkert til sem heitur statutory fullorðinsaldur (þáttastjórnandi þreyttur, með flensu og illa sofinn) svo dæmi séu nefnd. Hafið þetta í huga, kæru vinir. Að því sögðu þá er það samt sem áður svo að sé hugsað um MEGADETH þá koma þessi fyrrverandi vinir alltaf samtímis í huga. Við látum gjörðir prestsins hans ekki í léttu rúmi liggja þó svo að málið hafi verið reifað á hundavaði og í galsa.
Alltént MEGADETH risinn hverfur brátt af sjóanrsviðinu og við hlustuðum á þeirra síðasta framlag til tónlistarinnar eftir gjörsamlega ótrúlegan og glæsilegan feril sem skartar m.a. 17 fjölbreyttum breiðskífum, tónlistarvegferð hvar ýmislegt var reynt og hugrekki, frjósemi og fífldyrfskan fór með eftirminnilegum himinskautum. Alvöru lagasmíðar, tímalausir textar, tilraunamennska; góðar og slæmar ákvarðanir og meiri dramatík og veitleysa en Biblían, Kóranin og DV gætu nokkurn tíman rúmað.
Sérstakir gestir þáttarins voru Soffía Halldórudóttir og Atli Jarl Martin.
Meðal efni þáttar:
Smári Tarfur segir okkur frá HELLFOSS 2026
Höddi hlustar á UNSANE og Birkir á INTRONAUT
Soffía Villingur mæir með þremur plötum.
Atli Jarl og Birkir eru sammála því IMMOLATION eru pund fyrir pund...
NEGATIVE LOVE (Bandaríkin) ganga í Leynifélagið
YRJA kveikir bál í brjósti
Íslenskt Þungarokk
CROWBAR pílagrímsför Stokkið í eldinn
Tónlist í þættinum:
NEGATIVE LOVE með lagið "Besties" af Negative Love þröngskífunni (Static Era Records, 2026)
YRJA með lagið "Allt sem áður heilag var" af Basalt Towers þröngskífunni (2026)
Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook!
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.
Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.
Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.
Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.
Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.
Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.
Luxor er þekkingarhús viðburða.
Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
SNÆFUGL hlaðvörp
By Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður ÓlafssonMoonstone Tattoo Reykjavík kynnir: