Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

051: CONVERGE - Love Is Not Enough (2026) *Neyðarþáttur* + GRJÓT


Listen Later

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:

MEGADETH og CONVERGE eiga það m.a. sameiginlegt að teljast til brautryðjenda, burðar- og máttarstólpa þungarokksins og báðar þessar sveitir uppfylla, augljóslega, þær kröfur sem við eiga þegar nýjar útgáfur fá sinn sérstaka neyðarþátt. Stokkið í eldinn bregst hér við, Love Is Not Enough, nýjustu og elleftu hljóðversskífu (í fullri lengd) þessara fræknu Massachusetts hljómsveitar sem hlóð í sína fyrstu hljómsveitaræfingu árið 1990. Síðan þá hefur mikið blóð runnið til sjávar og nánast skilda að við tækjum Love Is Not Enough til gagnsins.

GRJÓT GENGNIR Í LEYNIFÉLAG STOKKIÐ Í ELDINN

Það er okkur sönn ánægja að fá að frumflytja lag frá Íslenska hnullungnum sem í daglegu tali er nefnt GRJÓT. Lagið "Blóðrauður" er nýjasta útspil GRJÓTS; hart, nístandi og furðulega-óþægilega dáleiðandi. Á annan bóginn eimreið en hinn eins og pláneta sem er að falla saman. 

Hljómsveitina skipa fyrrverandi og núverandi meðlimum hljómsveitanna Ophidian I, Cult of Lilith, Vögel og Helfró
Arnar Ástvaldsson - Söngur
Þórður Hermannsson - Gítar 
Ásgeir Helgi Þrastarsson - Gítar 
Samúel Örn Böðvarsson - Bassi 
Kjartan Harðarson - Trommur 


Tónlist í þættinum:
GRJÓT með lagið "Blóðrauður" (2026)

Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.

Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.

Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.

Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.

 

Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  

Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  

Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.

Luxor er þekkingarhús viðburða.  

Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

SNÆFUGL hlaðvörp

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinnBy Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson