Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

054: STOKKIÐ Á RÚNTINN


Listen Later

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir

Hörður sín Ólafsson heldur áfram að vera uppspretta góðra hugmynda. Innblásin af gömlu verkefni Birkis og Andrew Westerhouse, skapara aversionline.com, sem nefndist The Mystery Grab Bag (sjá dæmi eins og þetta og þetta) kom hann á legg pokapælingu sem fram fer inn í bíl á meðan rúntað er um götur Stór-Höfuðborgarsvæðisins.

Hörður ber undir Birki þrjú lög sem hann að öllum líkindum þekkir ekki en þarf að bregðast við í rauntíma (eins og gerðist gjarnan á rúntinum til forna) og svo gerir Birkir slíkt það sama og Hörður tekur við að fábúlerar yfir mælaborð bíls síns.

Þetta er gert svo að Stokkið í eldinn bræðurnir og hlustendur hlaðvarpssins geti kynnst ýmist glænærri tónlist frá óþekktum sveitum nú eða kynnst djúpskurði frá eldri og stærri sveitum sem einhverra hluta vegna náðu aldrei almennilega upp á dekk og auðvitað allt þarna á milli.

Til grundvallar lágu:
DUMB WAITER

NI

MIZMOR

SIX FEET UNDER

Þessi dagskrárliður er í þróun og efnistökin verða kvik eftir því. Smyrjum að leikslokum.




Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook
Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.

Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér.
Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.

Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.

Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.

 

Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  

Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  

Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.

Luxor er þekkingarhús viðburða.  

Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf

SNÆFUGL hlaðvörp

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinnBy Smári Tarfur, Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson