Fjallað um þrjár miklar listakonur á fyrri hluta 19. aldar sem allar höfðu ættarnafnið Grisi, enda voru þær skyldar. Þetta eru ballettdansmærin Carlotta Grisi og frænkur hennar, óperusöngkonurnar Giuditta og Giulia Grisi. Allar voru þær miklar stjörnur á sínum tíma, ekki síst Carlotta Grisi sem er eitt stærsta nafnið í sögu ballettsins. Í þættinum verður lesið brot úr bréfi sem Grímur Thomsen skrifaði frá París árið 1846, en þar lýsir hann dansi Carlottu. Einnig verða flutt atriði úr ballettinum „Giselle“ eftir Adam Adam, en titilhlutverkið var samið fyrir Carlottu. Þá verða flutt atriði úr óperunum „Kapúlettar og Montagsmenn“ eftir Vincenzo Bellini og „Don Pasquale“ eftir Gaetano Donizetti, en Giuditta og Giulia Grisi fóru með aðalhlutverk í þessum óperum við frumflutning þeirra.