Tónskáldið Dietrich Buxtehude fæddist árið 1737 í Helsingjaborg á Skáni sem tilheyrði Danmörku á þeim tíma. Hins vegar bjó hann lengi og starfaði í þýsku borginni Lübeck og er því litið á hann sem dansk-þýskt tónskáld. Í þættinum verða flutt tónverk eftir Buxtehude sem tengjast Danmörku og Svíþjóð, meðal annars tvö söngverk sem hann samdi við sænskan texta og verkið „Klinget für Freuden“ sem hann samdi í tilefni af brúðkaupi Karls XI. Svíkonungs og dönsku prinsessunnar Úlriku Eleónóru árið 1680. Einnig verða leikin orgelverk eftir hann á orgel Maríukirkjunnar í Helsingjaborg, en Buxtehude var organisti þar um tíma. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.