Á þessu ári eru liðin 50 ár síðan fyrsti maðurinn steig á tunglið og er þess minnst með ýmsum hætti. En hugmyndir um tunglferðir voru komnar fram löngu áður en tæknin gerði mönnum kleift að ferðast þangað. Í þættinum verða flutt atriði úr nokkrum óperum og óperettum sem fjalla um ferðir til tunglsins. Það eru óperurnar „Lífið á tunglinu“ eftir Joseph Haydn og „Ferð herra Brouceks til tunglsins“ eftir Leos Janácek, og óperetturnar „Ferðin til tunglsins“ eftir Jacques Offenbach og „Frú Lúna“ eftir Paul Lincke. Elsta verkið er frá árinu 1777 og það yngsta frá 1920. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.