Undanfarið hafa kröfur Katalóníumanna um sjálfstæði og réttarhöld yfir katalónskum sjálfstæðissinnum verið í fréttum. Í sambandi við þær fréttir er fróðlegt að skoða æviminningar sellóleikarans Pablos Casals, „Ljós og skuggar á langri leið“. Pablo Casals var einn besti sellóleikari tónlistarsögunnar og vakti aðdáun um allan heim fyrir list sína. Hann fæddist árið 1876 í El Vendrell í Katalóníu og lifði mikla umbrotatíma: tvær heimsstyrjaldir og einnig borgarastríðið á Spáni sem braust út 1936. Casals var hlynntur sjálfstæði Katalóníu, en engu að síður vinur spænsku konungsfjölskyldunnar og setti það hann stundum í dálítið óþægilega stöðu. Lesið verður upp úr æviminningum Pablos Casals og fluttar hljóðritanir með sellóleik hans. Lesari er Leifur Hauksson og umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.