Flutt verða tónverk sem Franz Schubert samdi árið sem hann lést, 1828, en hann var þá 31 árs að aldri. Meðal annars verður leikinn kafli úr strengjakvintett hans í C-dúr D.956, en það var síðasta kammerverk Schuberts og þykir vera eitt besta kammerverk tónlistarsögunnar fyrr og síðar. Einnig verður flutt verkið „Auf dem Strom“ fyrir söngrödd, píanó og horn. Þá verða flutt ýmis sönglög frá árinu 1828, þar á meðal tvö sem voru gefin út eftir dauða Schuberts í söngvaflokknum „Svanasöng“. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.