Skeggi

1. þáttur: Vinur barnanna


Listen Later

Í þessum fyrsta þætti er aðdragandi sögunnar kynntur. Í bók Bjargar Guðrúnar Gísladóttir Hljóðin í nóttinni, sem kom út 2014, er sagt frá meintum kynferðisbrotum Skeggja Ásbjarnarsonar, kennara og eins umsjónarmanna barnatímans í Ríkisútvarpinu á árunum 1950-1972. Rætt við Björgu, Grétar fyrrum nemanda við skólann, Soffíu Guðbjörtu sem var í bekk með Björgu og Sólveigu Ólafsdóttir doktor í sagnfræði sem segir sögu sína og frá tengslum við Laugarnesskólann og Skeggja.
Sex þátta heimildaröð unnin fyrir Rás 1 um Skeggja Ásbjarnarson kennara við Laugarnesskóla og meint kynferðisbrot hans gagnvart drengjum í skólanum. Fyrsti þáttur ber yfirskriftina Vinur barnanna.
Umsjón: Þorsteinn J.
Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir
Vakin er athygli á því að í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkeggiBy RÚV