Í þáttunum Útvarp Hversdagsleikar verður krafsað í hversdagssögu fullveldisins Íslands og jafnvel potað hlýlega í manngerð lögmál sem víða leynast. Í ljós kemur að hægt er að keppa í hinum hversdagslegustu hlutum. Þættirnir sem eru 10 talsins eru þriðja sería Rásar 1 á árinu sem snýr að 100 ára fullveldisafmælinu. Veðrið, innflutningshöft, sjónvarsleysi á fimmtudögum, dömubindi og bundið slitlag er meðal þess fjölmarga sem ber á góma.
Umsjón: Sólveig Ólafsdóttir og Guðni Tómasson.
Lesarar: Halla Harðardóttir og Björn Þór Sigurbjörnsson.