Á tónsviðinu

100 ára ártíð Jóhanns Sigurjónssonar


Listen Later

Í tilefni af 100 ára ártíð Jóhanns Sigurjónssonar skálds verður flutt tónlist við ljóð hans og texta. Af þekktum lögum við ljóð Jóhanns má nefna þjóðlagið "Sofðu, unga ástin mín" og lög Markúsar Kristjánssonar og Eyþórs Stefánssonar við ljóðið "Bikarinn", en einnig verða flutt minna þekkt lög, eins og til dæmis "Hvíslar mér hlynur" eftir Jón Ásgeirsson. Þá verður flutt lag sem eitt frægasta tónskáld Dana, Carl Nielsen, samdi fyrir frumsýningu á leikriti Jóhanns "Mörður Valgarðsson" hjá Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn árið 1918. Lesarar í þættinum eru Leifur Hauksson og Vera Illugadóttir. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV