Í sumum klukkuturnum, bæði hér á Íslandi og erlendis, má finna klukkuspil sem leika reglulega eitthvert stef. Af þekktum erlendum klukkum má nefna Big Ben í Lundúnum og Salzborgarklukkuspilið í Salzborg í Austurríki, fæðingarbæ Mozarts. Hér á Íslandi slá klukkur Hallgrímskirkju í Reykjavík, Akureyrarkirkju og Siglufjarðarkirkju stef. Fjallað er um klukkustef og hlustendur fá að heyra nokkur slík stef, bæði leikin af klukkum og sungin. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.