Tónskáldið Ralph Vaughan Williams fæddist 1872 og lést 1958. Hann þykir vera eitt merkasta tónskáld Englendinga á 20. öld. Árið 1941 útsetti hann níu jólalög fyrir breska setuliðið á Íslandi, en Ísland var hernumið af Bretum svo sem kunnugt er. Stutt er síðan jólalagaflokkurinn var hljóðritaður í heild í fyrsta skipti og gefinn út á geislaplötu.