Á tónsviðinu

13.02.2020


Listen Later

Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu söngkonunnar Guðmundu Elíasdóttur, en hún fæddist í Bolungarvík 23. janúar 1920. Guðmunda var ein besta mezzósópran-söngkona Íslands á 20. öld. Árið 1981 komu út endurminningar hennar í bókinni „Lífsjátning“ sem Ingólfur Margeirsson skráði, en bókin vakti mikla athygli og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Sagt er frá ferli Guðmundu og fluttar hljóðritanir með henni, meðal annars atriði úr óperunni „Miðillinn“ eftir Menotti, en túlkun Guðmundu á titilhlutverkinu í þeirri óperu þótti sérlega magnþrungin. Lesarar í þættinum eru Jórunn Sigurðardóttir, Bergljót Haraldsdóttir og Guðni Tómasson, en umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV