Leikin verða verk eftir Frederick Delius, Max Bruch og Henry Purcell. Meðal annars verður flutt verkið „A Song of Summer“ eftir Delius, kafli úr Skoskri fantasíu eftir Bruch og krýningaróðurinn „My Heart is inditing“ eftir Purcell. Í öllum þessum verkum er notað stílbragð sem kallað er „scotch snap“ eða „skoskur smellur“, en þá kemur stutt nóta rétt á undan langri nótu svo að áhrifin minna á smell.