Á tónsviðinu

13.09.2018


Listen Later

Píanótríó nr. 4 í e-moll Op.90 eftir Antonin Dvorák er kallað Dumky-tríóið, en „dumky“ er fleirtalan af orðinu „dumka“ sem er komið af úkraínska orðinu „duma“. Orðið var notað yfir söguljóð sem oft voru dapurleg í anda. Á 19. öld var farið að rannsaka þjóðlögin sem fylgdu ljóðunum og tónskáld af slafneskum uppruna tóku dúmkurnar upp á sína arma, einkum Antonín Dvorák. Í Dumky-tríói hans eru 6 kaflar sem allir eru dúmkur. Hjá Dvorák merkir orðið yfirleitt tónlist þar sem tregablandnir kaflar skiptast á við hraða og fjörmikla kafla. Í þættinum Leiknir verða þættir úr Dumky-tríóinu, en einnig þáttur í dúmku-formi úr strengjakvartett Dvoráks nr.10 í Es-dúr svo og dúmkur eftir Frédéric Chopin, Pjotr Tsjaíkovskí og Leos Janácek.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV