Á tónsviðinu

14.02.2019


Listen Later

Valentínusarmessa er 14. febrúar og í sumum löndum er dagurinn frá fornu fari helgaður elskendum, venja er að skrifa ástarbréf eða gefa elskunni sinni gjafir þennan dag. Hér á Íslandi var þessi venja lengi óþekkt, en fór að breiðast út upp úr 1990. Flutt er flutt tónlist af ýmsum toga sem tengist Valentínusardeginum. Þar kom ýmsir tónsmiðir við sögu, svo sem Johannes Brahms, John Cage, Irving Berlin og Willie Nelson. Lesið verður ljóð Ófelíu um Valentínusardag úr leikritinu „Hamlet“ eftir Shakespeare, en allmörg tónskáld hafa samið lög við það ljóð. Einnig verður lesið upp úr sögunni „Grímur í giftingarhugleiðingum“ eftir Richmal Crompton, sem fjallar um það þegar prakkarastrákurinn Grímur grallari reyndi að halda upp á Valentínusardaginn. Lesarar í þættinum eru Vera Illugadóttir og Leifur Hauksson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV