
Sign up to save your podcasts
Or


Sigmar Vilhjálmsson, oftast kallaður Simmi Vill er fimmtándi viðmælandi Matmanna. Hann er mikill frumkvöðull, hefur skemmtilega sköpunargáfu og nóg af skoðunum á flestum málum. Simmi hefur verið iðinn við frumkvöðlastörf árum saman, eða allt frá því hann lauk skólagöngu sinni við Menntaskólann á Egilsstöðum. Í dag fæst hann við fyrirtækin Eldum gott, Mamma Mía, Kjötborðið, Brauðfélagið og Mínigarðinn, en það sem kom honum á kortið í veitingabransanum voru fyrirtækin sem hann hefur stofnað eins og Íslenska Hamborgarafabrikkan, Keiluhöllin, Shake & Pizza og fleiri slík. Simmi hefur einnig starfað hjá 365 miðlum, Landsbankanum, Hlöllabátum, Stórveldinu, Lava, Miklagarði og Bankanum svo eitthvað sé nefnt. Farið er um víðan völl í þessum þætti Matmanna, sem endaði í aðeins lengra lagi en vanalega hjá okkur. Í honum bendir Simmi okkur m.a. á að prófa lakkrís vængina í Mínigarðinum, sem gætu verið að fara af matseðlinum bráðlega. Honum fannst líka hlaðvarpskakan góð!
By Mat MennSigmar Vilhjálmsson, oftast kallaður Simmi Vill er fimmtándi viðmælandi Matmanna. Hann er mikill frumkvöðull, hefur skemmtilega sköpunargáfu og nóg af skoðunum á flestum málum. Simmi hefur verið iðinn við frumkvöðlastörf árum saman, eða allt frá því hann lauk skólagöngu sinni við Menntaskólann á Egilsstöðum. Í dag fæst hann við fyrirtækin Eldum gott, Mamma Mía, Kjötborðið, Brauðfélagið og Mínigarðinn, en það sem kom honum á kortið í veitingabransanum voru fyrirtækin sem hann hefur stofnað eins og Íslenska Hamborgarafabrikkan, Keiluhöllin, Shake & Pizza og fleiri slík. Simmi hefur einnig starfað hjá 365 miðlum, Landsbankanum, Hlöllabátum, Stórveldinu, Lava, Miklagarði og Bankanum svo eitthvað sé nefnt. Farið er um víðan völl í þessum þætti Matmanna, sem endaði í aðeins lengra lagi en vanalega hjá okkur. Í honum bendir Simmi okkur m.a. á að prófa lakkrís vængina í Mínigarðinum, sem gætu verið að fara af matseðlinum bráðlega. Honum fannst líka hlaðvarpskakan góð!