Flutt eru atriði úr barnaóperunni "Litli sótarinn" sem Benjamin Britten samdi árið 1948. Íslenska óperan setti hana tvisvar á svið á fyrstu starfsárum sínum, 1982 og 1988. Í þættinum verður flutt hljóðritun sem gerð var í Bretlandi 1956, en þar stjórnar tónskáldið sjálft hljómsveitinni. Óperan fjallar um sótaradreng á fyrri hluta 19. aldar.