Á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu Maríu Brynjólfsdóttur tónskálds, en hún fæddist 4. mars 1919 og dó 2005. Vegna veikinda gat María ekki aflað sér mikillar tónlistarmenntunar, en tónlistin lét hana ekki í friði og lögin þyrptust að henni hvar sem hún var stödd, oft þegar hún var önnum kafin við húsverkin. Á árunum 1972-76 komu lög eftir hana út í þremur nótnaheftum í útsetningum Carls Billich, mörg lögin voru hljóðrituð og sum urðu vinsæl, eins og lagið „Glerbrot“ sem hófst á orðunum „Ég fann það um síðir að gæfan er gler“. Í þætti Unu Margrétar Jónsdóttur „Á tónsviðinu“, fim. 16. maí kl. 14.03 verða flutt sönglög eftir Maríu Brynjólfsdóttur og einnig fá hlustendur að heyra brot úr viðtali sem Guðrún Guðlaugsdóttir tók við Maríu í þættinum „Tónsmíðar í hjáverkum“ 1984.