Á tónsviðinu

17.01.2019


Listen Later

Í þættinum verður fluttur strengjakvartett í Es-dúr Op. 33 eftir Joseph Haydn. Þessi kvartett er kallaður Brandarakvartettinn af því að tónskáldið stríðir áheyrendum í lokakaflanum með endurteknum hléum svo að verkið virðist hvað eftir annað ætla að enda, en heldur samt áfram. Loks endar það eins og í lausu lofti. Einnig verður leikin píanósónata Haydns nr. 35 í As-dúr þar sem tónskáldið beitir svipuðum brögðum og þykist nokkrum sinnum vera að enda verkið áður en það endar í raun og veru.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV