“Ora et labora” er mottó þessa fyrri hluta okkar um klaustur á Íslandi og helstu rannsóknir á þeim. Klausturtími Íslands var frá 1030 – 1554 (anno domini) eða heil 524 ár og því af nógu að taka! Hvað er klaustur og hvað fer þar fram? Voru klaustur á Íslandi frábrugðin öðrum klaustrum? Hvernig tengjast rómverskir flísaleggjarar íslensku messuhaldi? Og hvað í ósköpunum eru tveir hlutar fjórðungs smjörs mikið?
Hollenskur biskup stígur á land í Viðey með vaxtöflur og Gleraugna-Pétur smíðar kamar í kirkjugarði. Snædís segir okkur frá Kirkjubæjarklaustri og valdeflandi nunnu sem gerði nákvæmlega það sem henni sýndist. Arthur segir frá upplifun sinni við að leita að klaustri á Þingeyrum þar sem hann fann aðallega ullarsokka og bíldekk.
Hljóðið fyrstu 6 mínúturnar er smá slæmt en er gott restina af þættinum.
Þáttagerðin er styrkt af Fornminjasjóði