Fjallað um danska tónskáldið Jacob Gade, en hann er frægastur fyrir tangóinn „Jalousie“ sem oft er kallaður „Jealousy“ á ensku. Auk þessa lags eru leiknar í þættinum fleiri tónsmíðar eftir Gade, svo sem valsar og tangóar fyrir píanó. Einnig er flutt revíulagið „Maggiduddi“ sem Gade samdi undir dulnefninu Léon Bonnard, en það varð mjög vinsælt í Danmörku árið 1923. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.