Á tónsviðinu

19.12.2019


Listen Later

Í þættinum er flutt tónlist úr skáldsögunni „Under the Greenwood Tree“ eftir Thomas Hardy. Skáldsagan er frá árinu 1872, hún er að nokkru leyti gamansöm ástarsaga, en fjallar líka um kirkjukór og hljómsveit í enskri sveitakirkju á þeim tíma 19. aldar þegar orgel fóru að ryðja slíkum hljómsveitum úr vegi. Fyrsti hluti sögunnar gerist um jól og koma því margir jólasöngvar fyrir í henni. Afi Hardys og faðir höfðu einmitt leikið í svipaðri kirkjuhljómsveit svo Hardy þekkti efnið vel. Gefnir hafa verið út hljómdiskar með lögum sem finna má í nótnabókum Hardy-fjölskyldunnar, en þar á meðal eru sum af lögunum í sögunni. Tónlistin í þættinum er að mestu flutt af þessum geislaplötum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV