Biskupsmálið

2. þáttur


Listen Later

Í öðrum þætti er farið yfir það hvað gerist þegar konur stíga fram gegn valdamiklum manni, og mæta kerfi sem virkar hægt og illa, og verndar frekar biskupsembættið en brotaþola.

Við heyrum frásögn konu sem kemur nú fram í fyrsta sinn, sem lýsir því að hún hafi orðið fyrir áreitni af hendi Ólafs Skúlasonar sem fermingarbarn í Bústaðakirkju fyrir rúmri hálfri öld. 

Þátturinn hefst á vettvangsferð í Bústaðakirkju, þar sem farið er um rýmið og inn í lítið, gluggalaust herbergi í kjallara sem gæti verið staðurinn sem Sigrún Pálína lýsti í sinni frásögn. 

Guðrún Ebba, dóttir Ólafs Skúlasonar, segir frá því að árið 1996, þegar hún hafði aldrei sagt neinum frá kynferðisofbeldi Ólafs gegn sér, hafi hún gert allt til að þagga niður í konunum. Alfred-Wolfgang, ekkill Sigrúnar Pálínu, segir frá því að þau hjónin hafi upplifað ofsóknir árið 1996. Í þættinum útskýrir Hjalti Hugason, prófessor emeritus í kirkjusögu, hvernig embætti biskups í Þjóðkirkjunni felur í sér verulegt vald, þar sem spurning vaknar um það, hvað gerist þegar biskup bregst, og kerfið er ekki hannað til að bregðast við?

Farið er í gegnum atburðarásina þegar kvartanir bárust innan kirkjunnar árið 1996: fundi, ferla og ýmsa erfiðleika sem komu upp, og hvernig Ólafur beitti samsæriskenningum til að gera frásagnir kvennanna tortryggilegar með því að tengja þær við innri kirkjudeilur. Þá er dregin upp skýr mynd af tíðarandanum: í skoðanagreinum og yfirlýsingum var stuðningur við biskupinn oft yfirgnæfandi, á meðan frásagnir þolenda voru kallaðar „áróður“, „mannorðsþjófnaður“ og jafnvel „mannorðsþjófnaður“.

Þættirnir koma út vikulega, á sunnudögum. 

Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir.

Leiklestur: Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir. 

Fréttaefni fengið frá Rúv. 

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

BiskupsmáliðBy Gabríela Bryndís Ernudóttir