Fransk-belgíska tónskáldið César Franck fæddist 10. desember 1822 og því eru á þessu ári liðin 200 ár frá fæðingu hans. Þátturinn er helgaður tónlist hans og á „Óperukvöldi útvarpsins“ í kvöld kl. 19.00 verður flutt ópera Francks „Hulda“. Franck samdi tónsmíðar af ýmsu tagi, en þótti sérlega mikill snillingur á orgelsviðinu, enda var hann sjálfur kirkjuorganisti. Þátturinn „Panis angelicus“ úr þriggja radda messu hans er einnig mjög vinsæll.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.