Á tónsviðinu

20.06.2019


Listen Later

Flutt verður tónlist sem tengist höfuðáttunum fjórum: norðri, suðri, austri og vestri. Meðal tónverkanna eru kórlögin „Tvær austrænar myndir“ eftir Gustav Holst, valsinn „Rósir úr suðri“ eftir Johann Strauss og prelúdían „Það sem vestanvindurinn sá“ eftir Claude Debussy. Einnig verður lesið brot úr sögunni „Paradísargarðurinn“ eftir H.C. Andersen þar sem segir frá vindunum fjórum og móður þeirra. Lesarar eru Anna Marsibil Clausen og Guðni Tómasson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV