Á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu skáldkonunnar Jakobínu Sigurðardóttur. Mörg lög hafa verið samin við ljóð hennar og í þættinum „Á tónsviðinu“ á Rás 1, fim. 20. september kl. 14.03, verður flutt tónlist við ljóð Jakobínu. Jórunn Viðar hefur samið lög við þrjú ljóð eftir Jakobínu, þekktast þeirra er líklega „Vökuró“, en hin eru „Vorljóð á Ýli“ og „Varpaljóð á Hörpu“. Af öðrum tónskáldum má nefna Sigursvein D. Kristinsson, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Hreiðar Inga Þorsteinsson og æskuvinkonu Jakobínu, Ingibjörgu Sigurðardóttur. Á seinni árum hefur dótturdóttir Jakobínu, Ingibjörg Azima, samið lög við ljóð ömmu sinnar og verður rætt við hana í þættinum. Einnig verður rætt við dóttur Jakobínu, Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, og flutt verða brot úr viðtali sem Inga Huld Hákonardóttir tók við Jakobínu árið 1975. Lesari er Vera Illugadóttir.