Ástasamband tónskáldsins Frédérics Chopins og frönsku skáldkonunnar George Sand er frægt í tónlistarsögunni. Fjallað verður um þrjár aðrar konur sem Chopin elskaði einnig: Konstancju Gladkowsku, Mariu Wodzinsku og Delfinu Potocku. Flutt verða verk sem hann tileinkaði þessum konum og meðal þeirra tónsmíða sem koma við sögu eru píanókonsert nr.2 í f-moll, noktúrna í Es-dúr ópus 9 og vals í Des-dúr ópus 64 nr.1 sem kallaður er Mínútuvalsinn. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.