
Sign up to save your podcasts
Or


Gestur 23. þáttar Matmanna er Yesmine Olsson en hún er matreiðslubókahöfundur, dansari, danshöfundur, einkaþjálfari og veitingamaður. Yesmine, sem er fædd á Srí Lanka en ólst upp í Svíþjóð, hefur búið á Íslandi í rúm 20 ár. Hún hefur haft mikinn áhuga á mat og matreiðslu frá unga aldri og hefur gefið út fjórar matreiðslubækur sem sumar hverjar hafa fengið alþjóðleg verðlaun. Yesmine hefur einnig haldið fjölda matreiðslunámskeiða, sett upp Bollywood-sýningar með söng og dansi, og verið gestakokkur hjá ýmsum fyrirtækjum. Hún hefur einnig verið með eigin matreiðsluþætti á RÚV. Hún er eigandi og hugmyndasmiður veitingastaðarins Funky Bhangra, sem opnaði í Pósthús Mathöll í Reykjavík haustið 2023 og svo Funky Bhangra Express í Gnoðarvogi 44 vorið 2025. Maturinn á staðnum er blanda af indverskum kryddum og skandinavískum hefðum.
By Mat MennGestur 23. þáttar Matmanna er Yesmine Olsson en hún er matreiðslubókahöfundur, dansari, danshöfundur, einkaþjálfari og veitingamaður. Yesmine, sem er fædd á Srí Lanka en ólst upp í Svíþjóð, hefur búið á Íslandi í rúm 20 ár. Hún hefur haft mikinn áhuga á mat og matreiðslu frá unga aldri og hefur gefið út fjórar matreiðslubækur sem sumar hverjar hafa fengið alþjóðleg verðlaun. Yesmine hefur einnig haldið fjölda matreiðslunámskeiða, sett upp Bollywood-sýningar með söng og dansi, og verið gestakokkur hjá ýmsum fyrirtækjum. Hún hefur einnig verið með eigin matreiðsluþætti á RÚV. Hún er eigandi og hugmyndasmiður veitingastaðarins Funky Bhangra, sem opnaði í Pósthús Mathöll í Reykjavík haustið 2023 og svo Funky Bhangra Express í Gnoðarvogi 44 vorið 2025. Maturinn á staðnum er blanda af indverskum kryddum og skandinavískum hefðum.