Í þættinum verður leikin fiðlusónata nr.3 eftir Ludwig van Beethoven, en hann tileinkaði verkið tónsmíðakennara sínum, Antonio Salieri. Einnig verður flutt arían "No, non turbarti" sem Beethoven samdi á árunum 1801-1803 og varðveist hefur í handriti með leiðréttingum gerðum af Salieri. Þá verða flutt lög sem Salieri og Beethoven sömdu við sama ljóðið: "Ich denke dein" eftir Matthison.