Flestir kannast við stefið sem leikið er á undan Eurovision-söngvakeppninni og fleiri Eurovision-útsendingum, en ekki vita samt allir hver er höfundur þess. Það er Marc-Antoine Charpentier, eitt mesta tónskáld Frakka á barokktímanum. Eurovision-stefið er tekið úr forspili að lofgjörðaróði hans, „Te Deum“, en talið er að það hafi verið samið 1692. „Te Deum“ verður leikið í heild og einnig kaflar úr öðrum verkum eftir Charpentier, svo sem söngverkinu „Árstíðirnar fjórar“ og ópeunni „Medeu“. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir.