Konur í tækni

24. Anna Helga Jónsdóttir, dósent við Raunvísindadeild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands


Listen Later

Í þessum fyrsta þætti ársins bjóðum við velkomna Önnu Helgu Jónsdóttur dósent við Háskóla Íslands. Anna Helga lauk BS-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2003, meistaraprófi í hagnýtri stærðfræði frá Danska tækniháskólanum (DTU) í Kaupmannahöfn 2005 og doktorsprófi í tölfræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Anna Helga var ráðin dósent í tölfræði við Háskóla Íslands 2018.

Í þættinum ræða Hildur og Anna Helga meðal annars:

  • Hvernig stærðfræði vakti áhuga hennar strax á grunnskólaárunum
  • Hvernig skiptinám til DTU í Kaupmannahöfn leiddi hana á braut tölfræðinnar og meistaranáms í hagnýttri stærðfræði og síðar kennslu við skólann
  • Hvernig doktorsnám sem var blanda af tölfræði og kennslu reyndist draumastaðan
  • Þróun og prófun kennslukerfisins tutor-web í stærðfræði og tölfræði
  • Um rafmyntina SmileyCoin sem nemendur fá sem umbun inni í kennslukerfinu
  • Þróun verkefnisins Education in a suitcase í Kenía þar sem kennslukerfið er notað og árangurinn sem hefur náðst og áhrifin sem það hefur haft á samfélagið
  • Hvernig bálkakeðjutæknin er að greiða götu verkefnisins
  • Um Stelpur diffra námsbúðirnar og mikilvægi þess að sýna fyrirmyndir
  • Þá gríðarlegu þróun sem er í gagnavísindum og gevigreind
  • Hvað það er dásamlegt að stunda hot yoga
  • ⁠Þátturinn er í boði Sýn, Advania og Geko

    Bækur sem Anna Helga minnist á í viðtalinu:

    The Alignment Problem: How Can Machines Learn Human Values?

    Superintelligence: Paths, Dangers, Strategies

    ------------------------------------------------------------------------

    Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?

    Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu! Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:

    LinkedIn

    Facebook

    Instagram

    ------------------------------------------------------------------------

    Um hlaðvarpið
    Umsjón fyrir hönd Vertonet hefur Hildur Óskarsdóttir

    ...more
    View all episodesView all episodes
    Download on the App Store

    Konur í tækniBy Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi