Píanókonsert Mozarts nr.9 í Es-dúr K.271 hefur oft verið kallaður „Jeunehomme“-konsertinn því talið var að tónskáldið hefði samið hann fyrir franskan píanóleikara, ungfrú Jeunehomme, sem hefði komið til Salzborgar, heimabæjar Mozarts. Tónlistarfræðingum gekk samt illa að finna heimildir um ungfrú Jeunehomme og mönnum fannst líka dálítið skrýtið að í bréfum sínum kallar Mozart hana „Jenomy“. Árið 2004 sýndi tónlistarfræðingurinn Michael Lorenz fram á það að konsertinn var í raun og veru saminn fyrir píanóleikarann Victoire Jenamy sem var dóttir vinar Mozarts, ballettdansarans Jean-Georges Noverre. Mozart samdi einnig ballettinn „Les Petits Riens“ (Smámunirnir) fyrir Noverre. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 24. maí kl. 14.03 verður leikinn hægi kaflinn úr píanókonsert Mozarts nr.9 sem ætti í rauninni að kallast Jenamy-konsertinn en ekki Jeunehomme-konsertinn. Einnig verður leikinn ballettinn „Les Petits Riens“. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.