Konur í tækni

25. Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania


Listen Later

Gestur okkar að þessu sinni er Helga Björk Árnadóttir, deildarstjóri hjá rekstrarlausnasviði Advania en Helga Björk tók þátt í átakinu „Konur í kerfisstjórnun“ og hefur verið áberandi í umræðunni um starfið og frábær fyrirmynd.

Hún hóf starfsferilinn hjá Símanum árið 2007 þar sem hún starfaði við að veita tæknilega aðstoð til viðskiptavina og varð síðar tæknimaður í vettvangsþjónustu fyrirtækjasviðs og svo hópstjóri á upplýsinga- og tæknisviði. Eftir flutning á sviðinu yfir til Sensa árið 2014 hóf hún þar störf sem kerfisstjóri. Frá árinu 2017 hefur hún unnið hjá Advania sem hópstjóri og kerfisstjóri og nú sem deildarstjóri.

Í þættinum ræða Hildur og Helga Björk meðal annars:

  • Áhuga hennar á tölvum sem vaknaði þegar hún var fjögurra ára gömul
  • Þegar hún bjó til sína fyrstu heimasíðu um 10 ára aldur
  • Hvað notkun IRCsins varð til þess að hún fann fólk með sömu áhugamál
  • Hvað spilun tölvuleikja hefur alltaf verið stór hluti af hennar lífi
  • Hvað varð til þess að hún fór á hárgreiðslubraut í Iðnskólanum
  • Hvað skortur á kvenkyns fyrirmyndum varð til þess að henni datt ekki í hug að hún gæti lært eitthvað tengt tölvum
  • Hvað tækifæri sem hún fékk hjá Símanum varð til þess að hún fann sína réttu hillu og fékk áhuga á rekstri tölvukerfa og fór í gegnum kerfisstjórnunarnám
  • Tækifærin sem hún hefur fengið hjá Advania
  • Hvað nám í kerfisstjórnun hentar fólki með fjölbreyttan bakgrunn
  • Ástríðu hennar á ferðlögum sem hefur orðið til þess að hún hefur komið til yfir 50 landa
  • ------------------------------------------------------------------------

    Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?

    Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:

    LinkedIn

    Facebook

    Instagram

    ------------------------------------------------------------------------

    Um hlaðvarpið

    Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir

    Styrktaraðilar eru Advania, Sýn og Geko

    ...more
    View all episodesView all episodes
    Download on the App Store

    Konur í tækniBy Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi