Árið 1977 var var 62. heimsþing Alþjóðlega esperanto-sambandsins haldið hér á Íslandi. Þá var frumflutt verkið „Sonĝpoemo pri ponto“ (Draumkvæði um brú) eftir Sigursvein D. Kristinsson við ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Tónskáldið tileinkaði Alþjóðlega esperantósambandinu verkið. Tveimur árum síðar, 1979, kom út hljómplata með tónverki Sigursveins og þekktum íslenskum sönglögum á esperantó. Í þættinum verður leikin tónlist af plötunni um leið og spjallað verður við Benedikt Hjartarson sem er í stjórn Íslenska esperantósambandsins. Sambandið hefur átt í erfiðleikum, það varð að selja húsnæði sitt vegna fjárskorts og hefur verið að leita að nýjum varðveislustað fyrir bókasafn sitt, 6000 bækur og tímarit á esperantó. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.