Konur í tækni

26. Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet


Listen Later

Gestur okkar að þessu sinni er Lena Dögg Dagbjartsdóttir, Senior Cloud Consultant hjá Crayon og verkefnastjóri átaksverkefnis Vertonet sem gengur út á að auka hlut kvenna í upplýsingatækni.

Lena Dögg mun leiða loka fasa átaksverkefnisins, sem felur í sér að koma skilgreindum aðgerðum í framkvæmd í samstarfi við styrktar- og stuðningsaðila. Lena Dögg hefur margra ára reynslu af verkefnastjórnun og er menntuð sem kennari, náms- og starfsráðgjafi og tölvunarfræðingur

Í þættinum ræða Hildur og Lena Dögg meðal annars:

  • Fjölbreytilegt námsval á menntaskólaárunum sem leiddi hana að textílkennaranámi í Kennaraháskólanum
  • Hvað hún brennur fyrir að kenna og deila með öðrum
  • Skortur á dagvistun árið 2006 sem varð til þess að hún fór í nám í náms- og starfsráðgjöf
  • Starfið hjá Hljóðbókasafninu sem gaf henni möguleika á að vaxa og bæta við sig tækniþekkingu
  • Hvernig hún fór „óvart“ í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavik
  • Hvað varð til þess að hún fór að starfa sem hugbúnaðarprófari og hvað felst í því starfi
  • Þegar hún kynntist konum sem störfuðu hjá Crayon á stofnfundi Vertonet árið 2018 sem varð til þess að hún sótti síðar um starf hjá fyrirtækinu
  • Hvað verkefnastjórastaðan hjá Vertonet kveikti neista sem hún gat ekki horft framhjá
  • Markmiðið að hlusta á a.m.k. 52 bækur á ári og hvað sunnudagsbollinn er mikilvægur og setur tóninn fyrir komandi viku
  • Lena Dögg minnist á þrjár bækur (hlekkir á Audible):

    Accelerate. Building and Scaling High Performing Technology Organizations

    The Unicorn Project. A Novel About Developers, Digital Disruption, and Thriving in the Age of Data

    Investments Unlimited. A Novel About DevOps, Security, Audit Compliance, and Thriving in the Digital Age

    ----------------------------------------------------------------

    Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?

    Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:

    LinkedIn

    Facebook

    Instagram

    ----------------------------------------------------------------

    Um hlaðvarpið

    Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir


    Styrktaraðilar: Advania, Sýn og Geko 🙌

    ...more
    View all episodesView all episodes
    Download on the App Store

    Konur í tækniBy Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi