Á tónsviðinu

26.01.2023


Listen Later

Þess er nú minnst að 50 ár eru liðin frá eldgosinu í Vestmannaeyjum 23. janúar 1973. Í tilefni af því verður leikin tónlist sem tengist gosinu í þættinum. Fluttur verður hljómsveitarforleikur Skúla Halldórssonar „Gos í Heimaey“, einnig nokkur lög af hljómplötunni „Eyjaliðið“ sem kom út 1973 og ballaða eftir Chopin, hljóðrituð á tónleikum Vladimirs Ashkenazy til styrktar Vestmannaeyingum 16. apríl 1973. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV