Í þættinum verða flutt atriði úr óperettunni „Nitouche“ eftir franska tónskáldið Hervé. Hann hét réttu nafni Louis Auguste Florimond Ronger, fæddist árið 1825 og dó 1892. Hervé samdi yfir 100 óperettur, en þekktust er „Mam´zelle Nitouche“ sem á íslensku hefur einfaldlega verið kölluð „Nitouche“. Hún var frumflutt í París 1883 og varð vinsæl víða um lönd. Í febrúar 1941 var „Nitouche“ í fyrsta skipti sýnd á Íslandi þegar Leikfélag Reykjavíkur og Tónlistarfélagið tóku höndum saman og settu óperettuna á svið í Iðnó, en sýningin sló öll fyrri aðsóknarmet. Óperettan fjallar um unga stúlku í klausturskóla, Denise. Hún þykist vera mikið dyggðaljós, en er ekki öll þar sem hún er séð. Hið sama á við um organista klaustursins, hann hefur samið óperettu undir dulnefni og gæti það orðið mikið hneyksli ef upp kæmist. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Vera Illugadóttir.