Á tónsviðinu

26.09.2019


Listen Later

Fjallað er um stafina sem oft eru settir á eftir nöfnum sígildra tónverka. Þannig er til dæmis talað um kantötu BWV 74 eftir Johann Sebastian Bach, konsertaríu K 418 eftir Wolfgang Amadeus Mozart og fiðlukonsert RV 199 eftir Antonio Vivaldi. Það liggur ekki í augum uppi hvað þessir stafir merkja, en þeir eru tilvísanir í skrár sem gerðar hafa verið um verk höfundanna. Stafurinn K á eftir verkum Mozarts merkir t.d. Köchel af því að Ludwig von Köchel tók saman skrá yfir verk hans. Í þættinum verða leikin verk eftir Bach, Mozart, Vivaldi og fleiri tónskáld og útskýrð merking stafanna sem fylgja verkum tónskáldanna. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV