Á tónsviðinu

27.09.2018


Listen Later

Tónskáldin Felix Mendelssohn og Richard Wagner voru samtíðarmenn og var Mendelssohn aðeins eldri en Wagner, fæddur 1809, en Wagner 1813. Viðhorf Wagners gagnvart Mendelssohn einkenndist af mótsögnum og má jafnvel segja að um hálfgert ástar-haturs samband hafi verið að ræða frá Wagners hálfu. Á æskuárum lýsti hann oft yfir aðdáun á tónlist Mendelssohns, en síðar reyndi hann að gera lítið úr henni og blandaðist andúð á Gyðingum þar inn í afstöðu hans. Í þættinum „Á tónsviðinu“ 27. sept. verður sagt frá sambandi Mendelssohns og Wagners, lesin verða brot úr skrifum Wagners og flutt tónlist eftir þá báða. Svo undarlega vill til að í hefðbundnum kirkjubrúðkaupum eru þeir báðir ómissandi, Brúðarmarsinn sem venja er að leika þegar gengið er inn í kirkjuna er eftir Wagner, en útgöngumarsinn eftir Mendelssohn. Lesari í þættinum er Björn Þór Sigbjörnsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV