Geir Finnsson ræðir Bill Cosby, Star Wars og samsæriskenningar varðandi Fan Bingbing í vikulegu innslagi sínu og við heyrum brot úr síðasta þætti Hve glötuð er vor æska? þar sem Þorvaldur Sigurbjörn Helgason veltir fyrir sér framtíð skáldskaparins. Matthías Tryggvi Haraldsson og Jörundur Ragnarsson kíktu svo í heimsókn og sögðu okkur frá verkinu Griðarstaður sem að gerist í IKEA.