Á tónsviðinu

28.05.2020


Listen Later

Óperettan „Meyjaskemman“ eftir Heinrich Berté fjallar um ævi tónskáldsins Franz Schuberts og fjórir af vinum hans koma fyrir sem persónur í óperettunni : Leopold Kupelwieser, Moritz von Schwind, Johann Michael Vogl og Franz von Schober. Þó að flest sem gerist í óperettunni sé skáldskapur voru þessir vinir Schuberts til í raun og veru og í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 28. maí kl. 14.03 verður fjallað um þessa fjóra vini tónskáldsins. Þeir voru allir listamenn hver á sínu sviði. Kupelwieser og Schwind voru báðir myndlistarmenn, Vogl var söngvari og Schober fékkst við sitt af hverju: myndlist, skáldskap og leiklist. Í þættinum verður meðal annars fluttur Kupelwieser-valsinn svonefndi sem Schubert samdi fyrir brúðkaup Kupelwiesers árið 1826. Valsinn var ekki gefinn út á prenti og varðveittist ekki heldur í handriti. Hins vegar var hann spilaður á píanó hjá Kupelwieser-fjölskyldunni, kynslóð eftir kynslóð, og varðveittist þannig þar til tónskáldið Richard Strauss skrifaði hann upp árið 1943 eftir píanóleik Mariu Mautner Markhof. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV