Tónlist eftir Leopold Mozart, föður hins fræga tónskálds Wolfgangs Amadeusar Mozart er leikin í þættinum. Leopold fæddist 1719 og lést 1787. Flutt verður kammersinfónía hans í D-dúr og þættir úr Leikfangasinfóníu hans og trompetkonsert. Einnig verður leikin fyrsta sinfónía Wolfgangs Amadeusar Mozart sem hann samdi 8 ára gamall. Hann samdi verkið haustið 1764 þegar faðir hans var veikur og ekki mátti leika á hljóðfæri vegna þess að sjúklingurinn þurfti að hafa næði. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.