Biskupsmálið

3. þáttur


Listen Later

Þriðji þáttur fjallar um hvernig málin voru afgreidd innan kirkjunnar árið 1996. Ólafur kærði konurnar til ríkissaksóknara fyrir ærumeiðingar og þær voru yfirheyrðar af lögreglu klukkutímunum saman. Ferlið einkenndist af ótta og óvissu, á meðan valdamesti maður kirkjunnar hélt stöðu sinni og virðingu.

Þó málin hafi verið felld niður varð afleiðingin sú að konurnar höfðu stöðu sakborninga, og þá voru það þær sem þurftu að verja sig. Illugi Jökulsson rifjar upp hugrekki kvennanna og skjaldborgina sem var slegin um biskupinn og endurflytur skoðanapistil sem hann flutti upphaflega í ríkisútvarpinu á sínum tíma. 

Í þættinum er rakin atburðarrás sem Sigrún Pálína upplifði í samskiptum við sr. Karl Sigurbjörnsson og sr. Hjálmar Jónsson í Hallgrímskirkju. Von sem kviknaði hjá henni, um að nú yrði loksins hlustað, brast snarlega þegar hún áttaði sig á að þeir væru í raun að vernda kirkjuna frekar en hana. Voru prestar í ómögulegri stöðu eða voru þeir líka gerendameðvirkir sjálfir? 

Við heyrum gamlar upptökur af prestastefnu árið 1997, þar sem tekin voru viðtöl við konur sem mótmæltu fyrir utan kirkjuna, og ræðuna sem Ólafur hélt á stefnunni þar sem hann tilkynnti afsögn sína. Þátturinn varpar ljósi á hvernig opinber kerfi geta snúist gegn brotaþola, þannig að brotaþoli þurfi að sanna sig, aftur og aftur, á meðan valdið skilgreinir umræðuna.

Þættirnir koma út vikulega, á sunnudögum. 

Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir.

Fréttaefni fengið frá Rúv. 

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

BiskupsmáliðBy Gabríela Bryndís Ernudóttir